4U 2006

Unaðslegi ungdómur U-sins

16.10.2007 18:32:45 / Sigrún Ingveldur

Partý fólk!!

Partý á föstudaginn heima hjá Sigríði. Mæting um 8 nema þú viljir fá þér að borða með okkur Sigríði, þá geturðu mætt e-ð fyrr :) ...láta þetta ganga til allra sem voru í U-inu! Hlakka til að sjá ykkur.

Er reyndar búin að setja þetta inná þau myspace sem ég fann...bara búin að fá svar frá Steina þó en ég hef þær óstaðfestu fregnir að Alli sem var með okkur í 2-X ætli að mæta!! :)

Ef þið vitið ekki hvar Sigríður á heima, hafið þá samband við hana eða mig bara :)

Allir að mæta svo :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 18:17:36 / Frímann

Haha

Jæja kæru vinir (og óvinir t.d. Rik). Nú bíðum við öll spennt eftir tilkynningu frá Sigrúnu Ingveldi sem kemur vonandi innan skamms.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 10:44:56 / Sigrún Ingveldur

Synist konnunin hafa a rettu ad standa...

Annad hvort er bloggid dautt eda allir ad bida eftir godri sogu af mer. Allavega ta langadi mig ad takka ykkur fyrir frabaera helgi tarna um daginn. Tetta var bara snilld og gaman ad hitta allt lidid aftur!

Svo langadi mig bara ad segja ykkur ad vid Hrabba erum nuna i Prag, nybyrjadar i interrailinu okkar, tad er alveg algjor snilld en mesta astaedan fyrir tessu bloggi er ad eg var alveg komin med leid a titlinu 4 dagar i djamm. Hef svosem ekkert merkilegt ad segja en ef tid viljid fylgjast med okkur skvisunum ta erum vid med blogg og slodin er
http://sigrunoghrabba.bloggar.is endilega kikid a tad og leyfid okkur ad sja hverjir eru ad fylgjast med :haha:

Yfir og ut.........


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 19:55:08 / Auður

7 dagar í DJAMM!!!

Jæja elskurnar,

Nú er bara vika þangað til að við hittumst vonandi sem flest. Eru ekki allir búnir að panta miða? Ef ekki, viljiði vinsamlegast gera það sem fyrst á síðu bautans:

http://bautinn.muna.is/

 Vil sko ekki að einhverjir verði ekki með af því þeir gleymdu að panta!

 Hvað er annars að frétta af partýmálum? Ætlar Sigrún að hýsa okkur like the good old times?:)

Ég hlakka rosalega til að sjá ykkur öll....

Sjáumst hress eftir viku :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 14:08:36 / Margrét

Júbilering

Jæja... Nú er að líða að því að við verðum eins árs stúdentar. Að hugsa sér hve tíminn líður hratt.
Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri ekki mjög sniðugt að hafa einhvern hitting annaðhvrot 15. eða 16. júní þar sem svo heppilega vill til að þetta eru föstudagur og laugardagur. Það koma vonandi sem flestir til Akureyrar til að fagna þessum merkis atburði...eru kannski allir beilerar í bekknum eða????

Allavega vildi bara koma þessari hugdettu á framfæri svo aðrir bekkjarmeðlimir gætu velt þessu fyrir sér. Ég sjálf hef náttúrulega ekkert húsnæði á Akureyri ef fólk vildi hafa partý. En þeir sem væru tilbúnir í að hafa partý er velkomið að gefa sig fram á kommentsvæði færslunnar. Ef einhverjir eru með hugmyndir væri gaman að fá að heyra þær.

Segiði öðrum bekkjarfélögum frá færslunni og segið hér fyrir neðan hvort þið verðið á svæðinu...

Svo er eitt sem eg vil minnast á að lokum. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn:).

Kv. Margrét:)

» 12 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 16:00:57 / Auður

hittingur gærdagsins

Ég vil þakka elítu bekkjarins fyrir frábærar stundir í gær.... ;) þrátt fyrir að þetta var fámenn samkoma þá var æði að loksins koma því í verk að hittast svona:D Rik þú verður að standa við það sem þú sagðir í gær og skipuleggja hitting eftir tvær vikur!;) og er ekki bara málið að hafa það strax í huga að hafa hitting á Ak um páskana?!

Allavegana þá vil ég þakka litlu og player (og jóhanni sem týndist reyndar svolítið snemma í gær...) fyrir skemmtilegt kvöld:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 15:23:40 / Margrét

Úti er ævintýri

Mig langaði að vita hverjir væru í Reykjavík en ætli ég geti ekki séð það fyrir neðan en aldrei að vita hvort einhver sé hættur í sínu námi og farin annað o.s.frv. Allavega þá finnst mér alveg nauðsynlegt að hittast eitthvað enda margir í Reykjavík.
Veit að þetta er lítill fyrirvari og örugglega ekki margir sem skoða bloggið en það er hægt að hittast heima hjá mér á laugardaginn. Hitti Frímann og Rik úti á gögtu um daginn og talaði eitthvað um þetta en allavega þá væri gaman að hittast...endilega geriði athugasemd við þetta blogg og segið mér hvað ykkur finnst.

Annars held ég að allir spjari sig vel. Ég geri það allavega. Er reyndar komin í viðskiptafræði og það er alveg rosalega gaman. Held að þetta sé eitthvað fyrir mig enda get ég nýtt þetta í svo margt. Er líka í söngnámi svo ég gæti kannski reynt að finna út hverni maður á að vera ríkur söngvari. Það er erfitt að reikna það held ég nema að maður sé Hollywood hommi sbr. Justin Timberlake eða hollywood drusla sbr. Paris Hilton sem þarf ekkert að gera nema að brosa og þá er kominn út diskur eftir mann sem selst örugglega vel til ákveðins markaðshóps.

Já það er nú margt skemmtilegt í þesu lífi. Allt uppfullt af skrítnum álfum og rugludöllum. En það er aldrei að vita nema að við hittumst. Allavega í næsta lífi krakkar mínir.

Kveðja Margrét

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 21:45:17 / Sigrún Ingveldur

Einu sinni var...

Jæja fólk er að biðja um sögu frá Sigrúni Ingveldi, þótt ég hafi nú ákveðna einstaklinga í huga sem gætu hafa svindlað í könnuninni. Allavega þá er ekki með neina góða sögu hérna en ákvað að stela bara frá F-inu og reyna að komast að því hvað allir eru að gera.

Andrés Már - Lögfræði í HA
Auður - Lyfjafræði í HÍ
Ása - Á leið til Sölden
Egill Steinar - Lífefnafræði í HÍ
Frímann Haukur - Efnafræði í HÍ
Henrik - Efnafræði í HÍ
Hrafnhildur Gréta - Vinna í Ak-Inn
Hrafnhildur - Sjúkraþjálfun í HÍ
Ingólfur Bragi - Auðlindafræði í HA
Jóhann Björn - Sagnfræði í HÍ
Jón Ragnar - Vinna í Perfect
Júlía Mist - Á leit til Sölden
Júlíus - Á flakki um Asíu
Margrét Hannesdóttir - Lögfræði í HÍ
María Björk - Sjúkraþjálfun í HÍ
Sigríður Katrín - Sjúkraþjálfun í HÍ
Sigrún - Vinna í Habitat
Sigrún Ingveldur - Vinna hjá Eimskip Flytjanda
Unnur Birna - Hreinlega veit ekki...sorry Unnur

En mikið rosalega eru flestir duglegir að hafa farið í skóla! :D Ekki það að við hin sem vinnum erum líka dugleg að vinna. En hvað segiði um partý milli jóla og nýárs? Þeir sem allavega búa hér...Jæja hætt þessu rugli. En ef það er e-ð af þessu vitlaust þá endilega leiðrétta það .


» 13 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 23:31:13 / Ása

Sölden

Heil og sæl. Voðalega er lítið um að vera á þessari síðu, var næstum búin að gleyma henni. Annars þá er farið að styttast í að ég og Júlía förum út fyrir landsteinana og höldum til Sölden í Austurríki eins og margir MA-ingar á undan okkur. Lagt verður af stað eftir rúmlega hálfan mánuð eða þann 7. desember með 3 daga stoppi í London og svo hefst 5 mánaða skíðaævintýri í Ölpunum. Þannig að ef ykkur vantar stað til að fara á í jóla/páskafríinu ykkar þá vitiði hvert skal leita.
Hvað er annars að frétta af restinni af bekknum.. Láta heyra í ykkur fólk.. :D

» 13 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 01:43:44 / Frímann

Loksins loksins part 2

Nú hafa myndir af afhendingu fjármunanna (sjá síðustu færslu) loksins borist til landsins frá hinni fjarlægu heimsálfu Asíu.


Hér má sjá Júlíus sjálfan á góðri stund með órangútan rétt fyrir afhendinguna. Eins og glögglega má sjá skín eftirvæntingin úr augum órangútansins enda ekki á hverjum degi sem sendifulltrúi frá svo áhrifamiklum hópi kemur á heimaslóðir órangútana.



Á þessari mynd má sjá agnarsmáaan órangútan snæða óeitrað laufblað sem keypt var fyrir peningana. Peningagjöf 4.U tryggði þessum litla ættingja okkar örugga framtíð eitthvað fram í næstu viku.

Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Reykjavík.
P.s. myndirnar voru teknar af síðunni mariusiasiu.bloggar.is án leyfis eða vitnesku eigenda hennar.

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 20:18:24 / Frímann

Loksins loksins

Nú hefur stundin sem allir fyrrverandi meðlimir 4.U hafa beðið eftir í tæp tvö ár. Fjármunirnir sem misnískir bekkjarfélagar létu af hendi rakna til órangútana eru loks komnir í réttar hendur. Júlíus Kristjánsson sérlegur sendiboði hópsins í Asíu afhenti órangútan þessa höfðinglegu gjöf nú á dögunum.
Óstaðfestar fregnir herma að náðst hafi mynd af atburðinum og er hennar, sé hún til, beðið með mikilli eftirvæntingu.

Þetta er Frímann Haukur Ómarsson sem talar frá Reykjavík

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 21:01:37 / Sigrún Ingveldur

Kraftur í kellu

Vildi bara deila þeirri gleði með ykkur að ég skipti um dekk á vörubílnum mínum alveg ein um helgina :D geri aðrir betur hehe!

Þetta er Sigrún Ingveldur sem talar frá Egilsstöðum

p.s. krakkar farið nú að lifna á þessari síðu þegar allir eru að fara vera í internettengingu og að fara gera hellings nýtt og spennandi jeij...pollýönnuhlutinn búinn

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 23:22:46 / Margrét

Reykjavík


Já verslunarmannahelgin var alveg dýrleg. Hitti einhverja úr bekknum eins og Steina, Jón, Rik, Ingó og Sigrúnu Ingveldi að mig minnir:p
Hef það náðugt í Reykjavík. Sit fyrir framan sjónvarpið og fylgist með þessu blessaða söngdæmi sem hann Magni minn er í ...Hann er algjör krúttíbolla og ætti skilið að vinna. Virðist vera mjög indæll piltur.
Það er ekki margt sem ég hef að segja en mig langaði svolítið að vita hverjir verða í Reykjavík 26.ágúst. Á afmæli 27.ágúst og kannski held ég eitthvað upp á það og vildi þá vita hverjir verða í bænum úr bekknum.
Kv.



» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 19:08:34 / Margrét

Verslunarmannahelgin

Þessi síða fór í smá sumarfrí sýnist mér. Þvílík leti en blogg verða kannski að fá frí öðru hvoru:s

Ég er bara í Reykjavík og skemmti mér ágætlega. Náttúrulega farið á útsölur og svona. Menningin er jú yndisleg hérna og á eftir fer ég á tónleika með Sigurrós. Það verður alveg æðislegt vonandi. Hef reyndar ekki heyrt mörg lög með þeim.

Maður hefur ekki hitt neinn úr bekknum síðan skólinn hætti en ég skal sko segja ykkur það að ég sakna ykkar. Bara að það væri einn skóladagur eftir:(

Nú er jú verslunarmannahelgin á næsta leiti og ætla ég að fara á Akureyri. Kem reyndar ekki fyrr en á laugardeginum þangað því ég fer að vinna en ég vona að ég sjái sem flesta úr u-inu. Hvar verðið þið annar lömbin mín?

Er að horfa á veðrið og það er bara hitabylgja að koma um vesló:o :D Hlakka til...

En allavega Þá bara vildi ég ekki leyfa þessari síðu að vera í fríi lengur svo að ég ákvað að skrifa eitthvað hér.

Sjáumst vonandi;)

Kv.Margrét

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 15:35:51 / Hrabba

Jæja hvað er í gangi

Á þessi síða bara að leggjast niður þar sem við erum hætt í MA??? hvar eru nú allir og hvað eru allir að gera? :) komiði með smá fréttir af ykkur, við meigum nú ekki alveg missa allt samband sko. Við getum reynt að fylgjast með hvort öðru hérna á síðunni ef þið verðið dugleg að blogga og kommenta og svona:P Það er annars mjög lítið að frétta af mér, bara vinna á Grenivík, svaka "stuð". Jæja hvað eru þið að gera í sumar? á eitthvað að ferðast og svona?

Jæja komiði með eitthvað;) bæjó

kv. hrabba

p.s. langar einhverjum í kettling? ég er með 2 sem fást gefins;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Busablogg
Gamlir kennarar