4U 2006

Unaðslegi ungdómur U-sins

20.11.2006 23:31:13 / Ása

Sölden

Heil og sæl. Voðalega er lítið um að vera á þessari síðu, var næstum búin að gleyma henni. Annars þá er farið að styttast í að ég og Júlía förum út fyrir landsteinana og höldum til Sölden í Austurríki eins og margir MA-ingar á undan okkur. Lagt verður af stað eftir rúmlega hálfan mánuð eða þann 7. desember með 3 daga stoppi í London og svo hefst 5 mánaða skíðaævintýri í Ölpunum. Þannig að ef ykkur vantar stað til að fara á í jóla/páskafríinu ykkar þá vitiði hvert skal leita.
Hvað er annars að frétta af restinni af bekknum.. Láta heyra í ykkur fólk.. :D
Rik skrifaði
Hey! einhver að skrifa eitthvað og það Ása. Geggjað. Flott Ása. ég er bara að hanga með Frímanni alltaf í efn í HÍ annars voða lítið að frétta. Það væri gaman ef fólk myndi nú taka höndum saman og bara skrifa eitthvað hér inn svo ég viti að það er á lífi. Ég hef svo mikklar áhyggur af sumum sem vaður veit ekki hvað eru að gera. Allavega þeir sem sakna mín geðvekt (þessi eini) geta farið á http://frikgroup.bloggar.is/ og gert sér glaðan dag. ble ble
Frímann skrifaði
Hey! einhver að skrifa eitthvað og það Ása. Geggjað. Flott Ása. ég er bara að hanga með Rik alltaf í efn í HÍ annars voða lítið að frétta. Það væri gaman ef fólk myndi nú taka höndum saman og bara skrifa eitthvað hér inn svo ég viti að það er á lífi. Ég hef svo mikklar áhyggur af sumum sem vaður veit ekki hvað eru að gera. Allavega þeir sem sakna mín geðvekt (þessi eini) geta farið á http://frikgroup.bloggar.is/ og gert sér glaðan dag. ble ble
Sigrún Ingveldur skrifaði
HAha...held að þið hangið of mikið saman strákar mínir ;) gaman að heya rik að þú munir ekkert eftir því að hafa hitt mig þegar ég var í rvk, gott kvöld :) en ég er allavega búin að skipta um vinnu, er að vinna hjá flytjanda núna keyrandi trailer og það besta er að ég er á akureyri :) kíki vonandi aftur suður fljótlega þangað til....
hrabba skrifaði
Vá eitthvað að gerast á þessari síðu;) gamangaman... en lítið að frétta af mér, er að vinna í Akinn en fer svo að vinna hjá mömmu eftir áramót í fyrirtækinu hennar;)
Rik skrifaði
Ég veit allt um þína Akinn vinnu Hrabba mín. Fæ fréttir daglega. Ég ætla ekki að segja hvaðan. Hehe Sigrún alltaf jafn fersk. Farðu bara varlega í hálkuni. Hahaha var að fá mynd uppí kollin af Sigrúnu að setja keðjur undir RISA fluttningarbíl uppá heiði í vonsku veðri. Ekki ílla meinnt bara fyndið.
Sigrún Ingveldur skrifaði
Frekar Sigrún að keðja á Grenivík í brjáluðu veðri...fór meira að segja útaf í fyrstu ferðinni enda var ófært. ,,Hvað er svona merkilegt við það...að vera karlmaður?" ;)
hrabba skrifaði
Hehe Rik, mér dettur alveg í hug hvaðan þú færð þær fréttir;)
Rik skrifaði
Já það er kanski frekar augljóst... Nú væri gaman ef fleiri fjörkálfa myndu blanda sér í umræðuna. (Persónulega væri ég til í að fá pistil frá Andrési sjálfum ef hann kíkir hér einhvertímann inn) Allavega þangað til Sigrún kemur með góða sögu, sem hún verður að gera skv skilgreiningu skilgreining=könnun
Sigrún Ingveldur skrifaði
Hver ber ábyrgð á þessari könnun? Eins og Frímann best veit er ég rosaleg í sögunum!
Rik skrifaði
Sannaðu það þá. Annars ertu bara all talk and no play (fyrir þá sem skilja ekki ensku þá má líkja þessu við lítin hund sem geltir hátt)
Frímann skrifaði
Ég veit allt um það hversu góðar sögur þú segir Sigrún.Í ljósi þessarar yfirlýsingar minnar tel ég að við tvö séum þau einu sem liggja ekki undir grun um að hafa búið þessa könnun til.
Sigrún Ingveldur skrifaði
Einmitt Frímsi!
Frímann skrifaði
En Sigrún mér sýnist það samt ekki fara á milli mála að fólk langar til að heyra sögu frá þér.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Busablogg
Gamlir kennarar