4U 2006

Unaðslegi ungdómur U-sins

02.07.2006 15:35:51 / Hrabba

Jæja hvað er í gangi

Á þessi síða bara að leggjast niður þar sem við erum hætt í MA??? hvar eru nú allir og hvað eru allir að gera? :) komiði með smá fréttir af ykkur, við meigum nú ekki alveg missa allt samband sko. Við getum reynt að fylgjast með hvort öðru hérna á síðunni ef þið verðið dugleg að blogga og kommenta og svona:P Það er annars mjög lítið að frétta af mér, bara vinna á Grenivík, svaka "stuð". Jæja hvað eru þið að gera í sumar? á eitthvað að ferðast og svona?

Jæja komiði með eitthvað;) bæjó

kv. hrabba

p.s. langar einhverjum í kettling? ég er með 2 sem fást gefins;)

Auður skrifaði
Er sammála þér hrabba mín... vil samt halda að ástæðan fyrir bloggleysið sé bara að fólk er upptekið og er ekki lengur að hanga á netinu á meðan það er að skrifa ritgerðir eða glósa í tímum;) En ég er bara að vinna á Friðrik V í sumar og er að nýta öll frí í að fara suður með smá dót í einu og mála og eitthvað svona leiðinlegt... Hefur einmitt hitt á að sólin skín bara þegar að ég er að vinna og hverfur þegar að ég á frí... þetta er pottþétt eitthvað samsæri hehe;) en það væri líka flott að sjá hversu margir eru að fara suður í haust... get engan vegin munað hverjir sögðust ætla læra t.d. lækninn í haust eða næsta haust, þannig að ca.bout tala væri flott þar sem sumir eru nú þegar farnir að minnast á bekkjarpartý fyrir sunnan;D Bið að heilsa ykkur elskurnar;*
Sigrún Ingveldur skrifaði
Ég var nú bara að koma frá Roskilde Festival í gær og það var vægast sagt geggjað :D Er svo líklegast að fara austur í dag til að vinna. Það gengur allt vel þar að keyra vörubílinn minn sem heitir Bleikur ;) Hann er fjólublár og bleikur hehe voða girlygirl! En auður ef þú ert að skoða þetta ertu þá ekki með DVD diska sem ég á? þætti vænt um að fá þá aftur. Og Hrabba! Ég fór á Keanu West á Roskilde og hann tók að sjálfsögðu: I ain´t saying she´´s a golddigger! Og það minnti mig bara þig elskan mín :* Verðum í bandi
Margrét skrifaði
Ég er bara að vinna í Reykjavík....komiði á Oliver ef þið viljið sjá mig;)...Annars getiði líka skoðað bloggið mitt sem ég skrifa stundum eitthvað á.
Rik skrifaði
Ég er óstundvís iðnaðarmeðu og byggi hús. Ég lykta af svitafílu allan dægin og er með karlmannlega loðna bryngu. Einnig er ég komin með mikkla og dökka skeggrót. Annars verð ég á stúdentagörðunum (nánartiltekið Skerjagarði á 4 hæð) og fer að vinna í því að flytja dótið mitt þangað.... Var í danmörku og geri annars voða lítið....
Frímann skrifaði
Ég er aðstoðarmaður húsvarðarins á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi í sumar. Fyrir utan vinnuna geri ég voða lítið, fór reyndar til Akureyrar um helgina og beilaði allsvakalega á "gömlu vinunum úr menntó".
Ása skrifaði
Ég er að vinna á gróðrastöðinni í Kjarna og sem þjónn á Pizza 67 svo ég geri nánast ekkert nema vinna og sofa. Svo er ég að fara til Sölden í Susturríki í desember og Júlía líka. En ég veit ekkert hvað ég ætla að gera í haust og þegar ég kem til baka.
Ása skrifaði
Meinti Austuríki...
Unnur Birna skrifaði
Mig dreymdi Hröbbu í nótt, hún var með einhverjum 14 ára gaur...? Og já, ég var að vinna í Laxárdal, óháð öllum GSM símum og neti, sjónvarpi og þess háttar óþarfa. Er komin til Akureyrar núna í siðmenninguna. Siðmenninguna. ...
Sigrún G skrifaði
Ég er að vinna á sjúkrahúsinu og á gallup. Sit semsagt og svara í símann allan daginn ;) ... og ég er að fara suður í lok ágúst ;) Verðum að hittast öll ... og þið sem ætlið ekki suður komið í heimsókn og mætið í partý ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Busablogg
Gamlir kennarar