Jæja... Nú er að líða að því að við verðum eins árs stúdentar. Að
hugsa sér hve tíminn líður hratt.
Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri ekki mjög sniðugt að
hafa einhvern hitting annaðhvrot 15. eða 16. júní þar sem svo
heppilega vill til að þetta eru föstudagur og laugardagur. Það koma
vonandi sem flestir til Akureyrar til að fagna þessum merkis
atburði...eru kannski allir beilerar í bekknum eða????
Allavega vildi bara koma þessari hugdettu á framfæri svo aðrir
bekkjarmeðlimir gætu velt þessu fyrir sér. Ég sjálf hef náttúrulega
ekkert húsnæði á Akureyri ef fólk vildi hafa partý. En þeir sem
væru tilbúnir í að hafa partý er velkomið að gefa sig fram á
kommentsvæði færslunnar. Ef einhverjir eru með hugmyndir væri gaman
að fá að heyra þær.
Segiði öðrum bekkjarfélögum frá færslunni og segið hér fyrir neðan
hvort þið verðið á svæðinu...
Svo er eitt sem eg vil minnast á að lokum. Gleðilegt sumar og takk
fyrir veturinn

.
Kv. Margrét